top of page
ChatGPT Image May 13, 2026, 05_54_39 PM_edited.jpg

Samfó: Ég, þú og við öll

Samkennd í samfélaginu 

Samkennd í samfélaginu er þróunarverkefni sem hefur það markmið að efla samkennd og samfélagslega ábyrgð í íslensku samfélagi. Verkefnið byggir á alþjóðlega viðurkenndu námsefni í félags-, tilfinninga- og siðferðisnámi, SEE Learning (Social, Emotional and Ethical Learning), sem verður aðgengilegt á íslensku undir heitinu Samfó: Ég, þú og við öll.

 

Námsefnið er ætlað kennurum, fagaðilum í skóla- og frístundastarfi og öðrum sem vinna að velferð barna og ungmenna, frá leikskóla til framhaldsskóla.

Bakgrunnurinn-Hvaðan kemur SAMFÓ?

Námsefnið er afurð áralangrar þróunar alþjóðlegs teymis rannsakenda og sérfræðinga á sviði menntunar, sálfræði og taugavísinda, leitt af Emory háskóla í Bandaríkjunum. Efnið kom fyrst út árið 2019 og er nú kennt í yfir 170 löndum.

 

Í SAMFÓ er lögð sérstök áhersla á þjálfun, athygli og seiglu með áfallamiðaðri nálgun, sem styður við fjölbreyttar þarfir nemenda og eflir öruggt námsumhverfi. Jafnframt er lögð rík áhersla á samfélagslega ábyrgð, fjölmenningu og samkennd.

Svið-og-viddir-mynd2.png
hringirsidviddir.png

Árangursríkar aðferðir

                                      Námsefnið SAMFÓ hefur hlotið viðurkenningu frá CASEL sem
                                      svokallað SELect Program. Sú viðurkenning staðfestir að efnið uppfylli
                                      ströng fagleg og kennslufræðileg gæðaviðmið og byggir á ítarlegri
                                      
úttekt á innihaldi, kennslufræði, innleiðingu og rannsóknum á áhrifum.

 

​​​​                                      Niðurstöður sýna að innleiðing námsefnisins hefur jákvæð áhrif á
                                      félagslega, tilfinningalega og námslega færni nemenda, samhliða því
                                      að kennarar fá markvissan stuðning og þjálfun til að tryggja gæði
                                      kennslunnar.

 

Niðurstöður rannsókna á vegum Emory háskóla benda jafnframt til mælanlegra framfara í lykilþáttum, þar á meðal aukinni hæfni til að setja sig í spor annarra, meiri samkennd gagnvart sjálfum sér og öðrum, sterkari innri hvata til samfélagslegrar ábyrgðar og aukinni sjálfstiltrú í námi. Rannsóknarmiðstöð Emory háskóla er í viðamiklu samstarfi við fag- og fræðafólk út um allan heim og standa yfir viðamiklar rannsóknir á námsefninu víða um heim sem lofa góðu og munu birtast í ritrýndum tímaritum á næstu misserum.

SElect_Casel.png
Logo SEE_research.png
heimskortneg.png

Alþjóðlegt samstarfsnet Samfó (SEE Learning).

Samtök um félags- tilfinninga- og siðferðisnám eru formlegir samstarfsaðilar og bera ábyrgð á þróun, innleiðing og útbreiðslu  námsefnisins á landsvísu en eru jafnframt með tengsl við aðra í alþjóðlega samstarfsnetinu.

Þú getur smellt hér ef þú vilt kynna þér námsefnið betur.

Skýr þörf

Í opinberum úttektum hefur ítrekað komið fram að skortur sé á aðgengilegu og gagnreyndu námsefni á íslensku sem styður félags- og tilfinningahæfni barna og ungmenna. Samhliða auknum áskorunum í líðan og samskiptum nemenda mætir Samfó þessari þörf með því að gera alþjóðlega viðurkennt námsefni aðgengilegt fyrir íslenskt skólasamfélag.

 

Námsefnið styður við grunnþætti Aðalnámskrár, einkum heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi og sjálfbærni og leggur áherslu á félagsfærni, samskipti og ábyrgð. Námsefnið er jafnframt í samræmi við stefnumótun stjórnvalda um menntun og lýðheilsu, sem og alþjóðleg markmið um sjálfbæra þróun og farsæld, með áherslu á að efla innri hæfni nemenda til ábyrgðar, samkenndar og virkrar þátttöku í samfélagi.

samfologo3.png
Logo SEE_research.png
bottom of page